- Auglýsing -
Fjögur landslið eru eftir í kapphlaupinu um tvö sæti í forkeppni Ólympíuleikanna þegar framundan er milliriðlakeppni Evrópumótsins. Auk íslenska landsliðsins eru það landslið Austurríkis, Hollands og Portúgals. Austurríki fór áfram í milliriðil á kostnað Spánar sem þegar var komið með sæti í forkeppninni ÓL í gegnum árangur á heimsmeistaramótinu fyrir ári síðan.
Austurríki, sem er með Íslandi í milliriðlakeppninni og verður síðasti andstæðingurinn miðvikudaginn 24. janúar í Köln, er eina liðið af fjórum sem byrjar milliriðlakeppnina með stig. Hin þrjú eru án stiga.
- Eftir HM fyrir ári eru sex þjóðir öruggar um sæti í forkeppni ÓL:
Spánn – Svíþjóð – Þýskaland – Noregur – Ungverjaland. - Tvær eru komnar með annan fótinn í forkeppni ÓL:
Króatía* og Slóvenar.**
*Króatar fá sæti í forkeppninni ef Egyptar verða Afríkumeistarar en Afríkukeppnin hófst í Kaíró í morgun miðvikudag, og lýkur 27. janúar.
**Slóvenar fá sæti í forkeppninni ef Egyptar verða Afríkumeistarar og Danir, Frakkar, Svíar, Þjóðverjar, Norðmenn eða Ungverjar verða Evrópumeistarar.
Tvær af eftirtöldum þjóðum fá sæti í forkeppni ÓL í gegnum EM2024:
Austurríki, Holland, Ísland, Portúgal.
- Frakkland og Danmörk taka ekki þátt í forkeppni ÓL. Frakkar verða gestgjafar leikanna og Danir eru heimsmeistarar.
- Forkeppni Ólympíuleikanna fer fram 14. til 17. mars í þremur fjögurra liða riðlum í þremur löndum.
EM 2024 – leikjadagskrá, úrslit, staðan – milliriðlar
- Auglýsing -