- Auglýsing -
Línumaðurinn Hannes Grimm hefur framlengt samning sinn við Gróttu til ársins 2026. Hannes hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið með Gróttu til fjölda ára og á 148 leiki fyrir meistaraflokk félagsins og jafnan verið einn traustasti leikmaður liðsins, jafnt í vörn sem sókn.
Hannes hefur skorað 53 mörk í 16 leikjum Olísdeildar karla á yfirstandandi keppnistímabili.
„Það eru frábær tíðindi að Hannes verði áfram í herbúðum félagsins enda lykilleikmaður liðsins bæði sóknarlega og varnarlega. Þeir eru vandfundnir meiri Gróttumenn en Hannes Grimm. Hann hefur undanfarin sjö ár þjálfað yngri flokka félagsins við góðan orðstír,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Gróttu.
- Auglýsing -