Karlalið Fram hefur orðið fyrir tveimur alvarlegum skakkaföllum á undanförnum sólarhring. Stórskyttan Tryggvi Garðar Jónsson meiddist í kvöld í leiknum við Selfoss og Reynir Þór Stefánsson meiddist á hné í gærkvöld á æfingu. Óttast er að báðir leiki ekki meira með Framliðinu á tímabilinu.
Hugsanlega slitnaði önnur hásin Tryggva Garðars undir lok leiksins við Selfoss í kvöld. Sé svo verður hann ekki með á ný fyrr en á næsta keppnistímabili.
Reynir Þór leikmaðurinn efnilegi hjá handknattleiksliði Fram laskaði liðband í hné á æfingu Fram-liðsins í gær. Talið er hugsanlegt að meiðslin geti haldið Reyni Þór frá keppni í nokkuð margar vikur.
Eins og nærri má geta eru meiðsli Tryggva Garðars og Reynis Þórs afar slæm tíðindi fyrir Fram sem einnig missti út Bjart Má Guðmundsson í kvöld, þó væntalega ekki til langs tíma. Ofan á annað hefur Fram lítt notið krafta Þorsteins Gauta Hjálmarssonar og Kjartans Þórs Júlíussonar upp á síðkastið. Báðir eru meiddir.
Fyrir leikinn við Selfoss í Olísdeildinni í kvöld í Lambhagahöllinni, var Reynir Þór markahæsti leikmaður Fram með 95 mörk í 15 leikjum.
Næsti leikur Fram í Olísdeildinni verður eftir rúma viku gegn FH í Kaplakrika.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.