Í ljós hefur komið að ekki aðeins fór handknattleikskonan frá Selfossi, Katla María Magnúsdóttir, úr vinstri ökklalið í undanúrslitaleik Selfoss og Stjörnunnar í Laugardalshöll eins og handbolti.is sagði frá í gærkvöld heldur brotnaði einnig vinstri sköflungurinn. Ljóst er að fyrir dyrum stendur langt og strangt bataferli næstu mánuði hjá landsliðskonunni.
Fer í segulómun
„Hún er ennþá í rannsóknum en það er alveg ljóst að meiðslin eru alvarleg. Hún er að minnsta kosti með brot í sköflungnum,“ segir Eyþór Lárusson þjálfari kvennaliðs Selfoss í samtali við mbl.is í dag. Þar kemur ennfremur fram að Kötlu Maríu bíði að fara í segulómun til þess að fá nákvæmari staðfestingu á meiðslunum.
Katla María kom illa niður eftir uppstökk í leiknum í Laugardalshöll í gærkvöld. Svo vel vildi til að læknir var á staðnum og kippti ökklanum í lið áður en sjúkraflutningamenn komu og fluttu Kötlu Maríu undir læknishendur á sjúkrahúsi.