Evrópumeistarar SC Magdeburg náðu efsta sæti B-riðils Meistaradeildar Evrópu þegar 14. og síðasta umferðin fór fram í gærkvöld. Magdeburg vann ungversku meistarana Veszprém, 30:28, í Veszprém. Um líkt leyti tapaði Barcelona, sem var í efsta sæti riðilsins, á heimavelli fyrir Montpellier, 37:24.
Magdeburg og Barcelona sitja yfir í fyrstu umferð útsláttarkeppni Meistaradeildar en mæta til leiks í átta liða úrslit eins og Kiel og Aalborg Håndbold sem hrepptu tvö efstu sæti A-riðils þar sem keppni lauk á miðvikudagskvöld.
Wisla Plock lagði Porto, 29:28, varð þar með alveg öruggt um sæti í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar. Porto er þar með úr leik eins og Celje frá Slóveníu sem tapaði fyrir GOG, 34:30, í gær.
Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg gegn Veszprém í gær. Janus Daði Smárason skoraði fjögur mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson eitt. Bjarki Már Elísson skoraði eitt mark fyrir Veszprém.
Í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar mætast: Pick Szeged - Veszprém. Wisla Plock - PSG. HG Zagreb - Montpellier. GOG - Industria Kielce. - Leikið verður 27. og 28. mars og 3. og 4. apríl. - Sigurliðin fara í átta liða úrslit með THW Kiel, Aalborg Håndbold, SC Magdeburg og Barcelona.
Lokastaðan í B-riðli:
SC Magdeburg | 14 | 12 | 0 | 2 | 439:384 | 24 |
Barcelona | 14 | 11 | 0 | 3 | 473:409 | 22 |
Veszprém | 14 | 10 | 0 | 4 | 489:436 | 20 |
Montpellier | 14 | 7 | 0 | 7 | 411:396 | 14 |
GOG | 14 | 6 | 1 | 7 | 429:445 | 13 |
Wisla Plock | 14 | 5 | 1 | 8 | 376:386 | 11 |
Porto | 14 | 4 | 0 | 10 | 409:480 | 8 |
Celje | 14 | 0 | 0 | 14 | 400:490 | 0 |
- Efstu tvö liðin fara beint í átta liða úrslit.
- Liðin í þriðja til og með sjötta sæti taka sæti í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar og mæta liðum úr B-riðli. Keppni í B-riðli lýkur annað kvöld (fimmtudag).
- Tvö neðstu liðin eru úr leik í Meistaradeildinni.