- Auglýsing -
Bjarni Ófeigur Valdimarsson og samherjar í Skövde eru komnir með annan fótinn í úrslitarimmuna um sænska meistaratitilinn eftir að hafa lagt IFK Kristianstad öðru sinni í undanúrslitum í dag, 33:27. Leikið var í Kristianstad.
Þriðja viðureign liðanna verður í Skövde eftir viku og vinni Skövde á ný tryggir liðið sér sæti í úrslitum um sænska meistaratitilinn gegn Sävehof eða Lugi sem eigast við í hinni viðureign undanúrslitanna.
Bjarni Ófeigur skoraði ekki mark í leiknum í dag. Teitur Örn Einarsson skoraði fjögur mörk fyrir Kristianstad, þar af tvö úr vítaköstum. Einnig átti Teitur Örn þrjár stoðsendingar. Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði þrjú mörk auk tveggja stoðsendinga.
- Auglýsing -