„Þetta er leikur sem eigum að vinna og ætlum að vinna. Þar með tryggjum við okkur inn á EM,“ sagði hin þrautreynda landsliðskona Þórey Rósa Stefánsdóttir sem leikur sinn 136. landsleik í dag þegar íslenska landsliðið í handknattleik mætir landsliði Lúxemborgar í Centre sportif National d’COQUE í Lúxemborg. Viðureignin er liður undankeppni Evrópumótsins.
Viðureignin verður sú næst síðasta hjá báðum liðum í 7. riðli undankeppninnar og eins og Þórey Rósa sagði þá innsiglar íslenska landsliðið sér þátttökurétt í lokakeppni EM með sigri.
„Þetta er skyldusigur þótt landslið Lúxemborgar hafi eitthvað sótt í sig veðrið. Við eigum að vinna örugglega ef við verðum rétt stilltar þegar á hólminn verður komið,“ segir Þórey Rósa sem vill tengja leikina tvo saman, gegn Lúxemborg ytra og við Færeyjar heima á sunnudaginn. Með sigri í báðum leikjum hreppir íslenska liðið annað sæti í riðlinum.
Sýna hvar við stöndum
„Ég vil að við förum inn í leikina tvo með það að markmiði að vinna þá báða og sýna þar með ákveðinn klassa, setja standard á liðið. Sýna hvar við stöndum. Í báðum tilfellum verður um sýnda veiði en ekki gefna. Við verðum að vera einbeittar og hópurinn er samstíga enda höfum við verið mikið saman síðustu mánuði,“ sagði Þórey Rósa Stefánsdóttir í samtali við handbolta.is.
Leikur Lúxemborgar og Íslands hefst klukkan 16.45. Útsending frá viðureigninni verður hjá RÚV auk þess sem handbolti.is verður með textalýsingu.
Úrslit leikja í 7. riðli undankeppni EM:
Ísland – Lúxemborg 32:14 (19:7).
Svíþjóð – Færeyjar 37:20 (19:13).
Færeyjar – Ísland 23:28 (12:11).
Lúxemborg – Svíþjóð 17:39 (7:15).
Lúxemborg – Færeyjar 16:34 (9:16).
Ísland – Svíþjóð 24:37 (12:17).
Svíþjóð – Ísland 37:23 (18:11).
Færeyjar – Lúxemborg 39:21 (17:9).
Lúxemborg – Ísland, 3. apríl.
Færeyjar – Svíþjóð, 3. apríl.
Svíþjóð – Lúxemborg, 7. apríl.
Ísland – Færeyjar, 7. apríl.
Staðan:
Svíþjóð | 4 | 4 | 0 | 0 | 150:84 | 8 |
Ísland | 4 | 2 | 0 | 2 | 107:111 | 4 |
Færeyjar | 4 | 2 | 0 | 2 | 116:102 | 4 |
Lúxemborg | 4 | 0 | 0 | 4 | 68:144 | 0 |