- Auglýsing -
Handknattleiksdeild Fjölnis hefur á síðustu vikum skrifað undir nýja samninga við nokkra leikmenn liðsins. Fjölnir leikur í Grill 66-deild kvenna á næsta keppnistímabili eins og á nýliðnum vetri.
- Þyri Erla Sigurðardóttir markvörður sem er uppalin hjá félaginu. Hún hefur verið ein af bestu leikmönnum Fjölnis í nokkur ár
- Nína Rut Magnúsdóttir er línumaður sem lenti í slæmum meiðslum en hefur snúið til baka út á leikvöllinn.
- Telma Sól Bogadóttir var frábær með liðinu í vetur og skoraði 62 mörk á tímabilinu ásamt því að vera í stóru hlutverki í vörninni.
- Sólveig Ása Brynjarsdóttir miðjumaður. Hún skoraði 59 mörk í 18 leikjum Fjölnis í Grill 66-deildinni í vetur.
- Auglýsing -