- Auglýsing -
Nýliðar Olísdeildar karla í handknattleik á næstu leiktíð, Fjölnir í Grafarvogi, hafa tryggt sér áframhaldandi krafta Alex Mána Oddnýjarsonar.
Alex Máni er hægri hornamaður sem leikið hefur upp yngri flokka félagsins og verið einn traustasti leikmaður meistaraflokksliðsins á undanförnum árum.
Alex Máni skoraði 66 mörk í 18 leikjum Fjölnis í Grill 66-deildinni í vetur. Nýr samningur hans við Grafarvogsliðið er til tveggja ára.
- Auglýsing -