- Auglýsing -
Báðir úrslitaleikir Vals og gríska liðsins Olympiacos í Evrópubikarkeppninni í handknattleik karla verða sendir á RÚV. Fyrri viðureignin fer fram á heimavelli Vals laugardaginn 18. maí en sú síðari verður í Tasos Kampouris í Chalkida í Grikklandi viku síðar. Báðar viðureignir hefjast klukkan 17. Samanlagður sigurvegari beggja leikja verður Evrópubikarmeistari.
RÚV segir í dag frá væntanlegum útsendingum sínum frá leikjunum en um sannkallað gleðiefni er að ræða fyrir handknattleiksunnendur.
Valur hefur leikið 12 sinnum í Evrópubikarkeppnninni á keppnistímabilinu og unnið í hvert sinn.
- Auglýsing -