Handknattleiksmarkvörðurinn efnilegi, Eva Dís Sigurðardóttir, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Aftureldingu aðeins tveimur dögum eftir að ljóst varð að Afturelding endurheimtir sæti í Olísdeild kvenna á næsta keppnistímabili. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aftureldingu.
Eva Dís er tvítug og hefur farið á kostum með Aftureldingu í Grill 66-deildinni í vetur. Svo mjög vel hefur hún staðið sig að Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari valdi Evu Dís í æfingahóp landsliðsins í febrúar. Hún hefur einnig leikið með yngri landsliðum Íslands.
Eftir því sem næst verður komist þá vakti frammistaða Evu Dísar athygli fleiri en Arnars landsliðsþjálfara því lið í Olísdeildinni höfðu á henni augastað, samkvæmt heimildum handbolta.is.
Afturelding stefnir á að mæta með öflugt lið til leiks í Olísdeildina á næsta keppnistímabili undir stjórn Guðmundar Helga Pálssonar þjálfara og samstarfsfólks.
Lokaumferð Grill 66-deildar kvenna fer fram á föstudagskvöld og tekur Afturelding á móti Víkingi á heimavelli kl.19.30.