- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Forseti Íslands og borgarstjóri tóku á móti Evrópubikarmeisturum Vals

Borgarstjóri ásamt leikmönnum og förneyti Vals fyrir utan Höfða. Mynd/Aðsend
- Auglýsing -

Nýkrýndum Evrópubikarmeisturum Vals í handknattleik karla hefur verið sýndur ýmiskonar heiður síðustu daga eftir að þeir kom heim úr sigurförinni til Aþenu.

Borgarstjórinn í Reykjavík, Einar Þorsteinsson, bauð leikmönnum, þjálfurum og stjórnendum Vals til móttöku í Höfða síðdegis á miðvikudaginn. Að móttökunni lokinni voru leikmenn Vals heiðursgestir á oddaleik Vals og Grindavíkur um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla.

Evrópubikarmeistarar Vals og föruneyti ásamt forseta Íslands á Bessastöðum.

Í gær, fimmtudag, tók forseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson, á móti karlaliði Vals í handknattleik og föruneyti á Bessastöðum. Forseti óskaði Valsmönnum til hamingju með glæsilegan árangur og ræddi við gestina um gildi afreks- og almenningsíþrótta í samfélaginu, eftir því sem fram kemur á heimasíðu embættisins.

Fleiri myndir er að finna á heimasíðu embættis forseta Íslands.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -