- Auglýsing -
Nýkrýndir Portúgalsmeistarar í handknattleik karla, Sporting Lissabon með landsliðsmanninn Orra Frey Þorkelsson innanborðs, leika til úrslita í bikarkeppninni í dag gegn Porto.
Sporting vann Belenenses, 28:20, í undanúrslitum í keppnishöllinni í Viseu í gær. Í kjölfarið lagði Porto liðsmenn Póvoa AC Bodegão, 39:30, í hinni viðureignnni.
Orri Freyr skoraði fimm mörk í sex tilraunum í undanúrslitaleiknum í gær.
Sporting vann Porto í síðustu umferð úrslitakeppninnar fyrir um viku, 35:33, og innsiglaði um leið meistaratitilinn.
- Auglýsing -