- Auglýsing -
Aðalsteinn Eyjólfsson vann í kvöld sinn fyrsta bikar í Sviss þegar hann stýrði liði sínu Kadetten Schaffhausen til sigurs í úrslitaleik bikarkeppninnar. Kadetten vann þá HC Kriens með eins marks mun í æsilega spennandi úrslitaleik, 22:21. Kadetten var marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 12:11.
Bartók Donát tók af skarið og skoraði sigurmark Kadetten á síðustu mínútu leiksins.

Aðalsteinn tók við þjálfun Kadetten í sumar sem leið en liðið er sigursælasta handknattleikslið Sviss á síðustu árum.
Kadetten vann Bern í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum um svissneska meistaratitilinn í vikunni.

- Auglýsing -