Benedikt Gunnar Óskarsson, Val, og Elín Klara Þorkelsdóttir úr Haukum, voru valin besta handknattleiksfólk Olísdeildar á nýliðinni leiktíð. Uppskerhóf HSÍ fór fram í hádeginu í dag þar sem þau ásamt fleirum tóku við viðurkenningum fyrir árangur sinn á tímabilinu. Þetta er annað árið í röð sem Elín Klara er valin sú besta í Olísdeild kvenna.
Thea Imani Sturludóttir, Val, og Aron Pálmarsson, FH, fengu Sigríðar- og Valdimarsbikarinn sem afhentur er árlega mikilvægustu leikmönnum Olísdeildanna tveggja.
Elmar Erlingsson, ÍBV, fór heim með tvenn verðlaun, annarsvegar sem besti sóknarmaðurinn og hinsvegar sem efnilegasti leikamaður Olísdeildar karla.
Þjálfarar Íslands- og deildarmeistaranna, Val og FH, Ágúst Þór Jóhannsson og Sigursteinn Arndal eru þjálfarar ársins 2024.
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson voru valdir dómarar ársins í níunda sinn á 10 árum. Sá fyrrnefndi hefur orðið fyrir valinu í 16 skipti á 17 árum.
Verðlaunahafar
Olísdeild kvenna:
Þjálfari ársins: Ágúst Þór Jóhannsson, Val.
Mikilvægasti leikmaðurinn, Sigríðarbikarinn: Thea Imani Sturludóttir, Val.
Besti leikmaður: Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukum.
Besti sóknarmaður: Elín Rósa Magnúsdóttir, Val.
Besti varnarmaður: Thea Imani Sturludóttir, Val.
Efnilegasti leikmaður: Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Fram.
Besti markvörður: Hafdís Renötudóttir, Val.
Háttvísisverðlaun HSDÍ: Karen Tinna Demian, ÍR.
Olísdeild karla:
Þjálfari ársins: Sigursteinn Arndal, FH.
Mikilvægasti leikmaðurinn, Valdimarsbikarinn: Aron Pálmarsson, FH.
Besti leikmaður: Benedikt Gunnar Óskarsson, Val.
Besti sóknarmaður: Elmar Erlingsson, ÍBV.
Besti varnarmaður: Alexander Örn Júlíusson, Val.
Efnilegasti leikmaður: Elmar Erlingsson, ÍBV.
Besti markvörður: Björgvin Páll Gústavsson, Val.
Háttvísisverðlaun HSDÍ: Árni Bragi Eyjólfsson, Aftureldingu.
Besta dómaraparið: Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson.