- Auglýsing -
Handknattleiksmaðurinn Róbert Sigurðarson hefur gengið til liðs við ÍBV á nýjan leik eftir eins árs veru hjá Drammen í norsku úrvalsdeildinni. Hann nýtti sér í vor uppsagnarákvæði í samningi sínum. ÍBV sagði frá komu Róberts í morgun.
Koma Róberts styrkir ÍBV-liðið mikið enda er hann einn allra besti varnarmaður í íslenskum handknattleik. Fleiri félög munu hafa sýnt Róberti áhuga.
Róbert, sem er Akureyringur að upplagi og lék m.a. með Akureyri handboltafélagi, var í sex ár með ÍBV, frá 2017 til 2023 og varð tvisvar Íslandsmeistari, og jafn oft bikarmeistari á þeim tíma.
Sjá einnig:
Karlar – helstu félagaskipti 2024
- Auglýsing -