Olympiakos, andstæðingur Vals í úrslitum Evrópubikarkeppninnar í síðasta mánuði, varð í dag grískur meistari í handknattleik karla í fjórða sinn, þar af í annað skiptið á þremur árum. Olympiakos lagði AEK Aþenu, meistara síðasta árs, með fjögurra marka mun á heimavelli í oddaleik, 33:29. AEK var marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 16:15.
Staðan var jöfn, 25:25, þegar 12 mínútur voru til leiksloka. Þá bitu leikmenn Olympiakos í skjaldarrendur og náðu sex marka forskoti á nokkra mínútna kafla.
Stórskyttan Savvas Savvas var markahæstur hjá Olympiakos í úrslitaleiknum með níu mörk.
Fyrr í vor varð Olympiakos deildarmeistari.
Með leiknum lauk deildarkeppni í evrópskum handknattleik sem er nokkuð á eftir tilmælum sem Handknattleikssamband Evrópu gaf út um að deildarkeppni skyldi hvarvetna vera lokið 2. júní.
Upptaka af oddaleiknum í dag: