- Auglýsing -
Nýkrýndir bikarmeistarar Kadetten Schaffhausen, undir stjórn Aðalsteins Eyjólfssonar, eru komnir í undanúrslit um svissneska meistaratitilinn í handknattleik eftir að hafa lagt í dag lið Bern Muri öðru sinni, 33:26. Leikið var í Bern.
Kadetten, sem vann bikarkeppnina síðasta laugardag mætir annað hvort Wacker Thun eða HC Kriens í undanúrslitum. Þau lið mætast öðru sinni í dag og HC Kriens með einn vinning en Wacker Thun engan.
Kadetten var með yfirhöndina í leiknum í dag frá upphafi og var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 16:14. Liðið jók forskot sitt jafn og þétt í síðari hálfleik.
- Auglýsing -