- Auglýsing -
Undanúrslit umspils um sæti í Olísdeild karla í handknattleik hefst í kvöld. Fjölnismenn fá liðsmenn Kríu í heimsókn í Dalhús og Hörður frá Ísafirði sækir Víkinga heim í Víkina.
Vinna þarf tvo leiki til þess að komast í úrslitaleikina um sæti í Olísdeild karla á næsta keppnistímabili. Liðin mætast öðru sinni á laugardaginn og oddaleikir, ef á þarf að halda, eru ráðgerðir á þriðjudagskvöld.
Umspil, undanúrslit, 1. umferð:
Dalhús: Fjölnir – Kría, kl. 19.30 – sýndur á Fjölnirtv.
Víkin: Víkingur – Hörður, kl. 19.30 – sýndur á Víkingurtv.
Lokastaðan í Grill 66-deild karla.
- Auglýsing -