- Auglýsing -
Eyjakonan Sara Dröfn Richardsdóttir hefur samið við handknattleiksdeild Umf. Selfoss til þriggja ára en Selfossliðið leikur á ný í Olísdeildinni á næstu leiktíð eftir árs veru í Grill 66-deildinni.
Sara Dröfn er hægri hornamaður sem kemur til Selfoss frá uppeldisfélagi sínu ÍBV. Þar hefur hún verið fastamaður í meistaraflokki í þrjú ár þrátt fyrir ungan aldur. Þá hefur Sara hefur verið í öllum yngri landsliðum Íslands.
„Við fögnum því að þessi öflugi leikmaður velji að taka þátt í uppbyggingu kvennahandboltans á Selfossi og bjóðum Söru Dröfn hjartanlega velkomna,“ segir í tilkynningu frá handknattleiksdeild Umf. Selfoss í dag.
Konur – helstu félagaskipti 2024
- Auglýsing -