- Auglýsing -
Guðmundur Steindórsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Umf. Selfoss um tvö ár.
„Guðmundur er vinstri skytta og öflugur varnarjaxl sem var hluti af stórskemmtilegu U-lið Selfyssinga í vetur. Á lokahófi 3. flokks og akademíunnar var hann valinn varnarmaður ársins í 3. flokk ásamt því að útskrifast úr handknattleiksakademíu Selfoss.
Það er ljóst að við munum fá að sjá þennan spennandi leikmann stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki í vetur,“ segir í tilkynningu frá handknattleiksdeild Selfoss í morgun.
- Auglýsing -