- Auglýsing -
- Auglýsing -

EHF staðfestir árs keppnisbann Bezjak

Slóveninn Marko Bezjak t.v. situr í súpunni eftir að hafa látið skapið hlaupa með sig í gönur. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur staðfest að árs keppnisbann sem slóvenski handknattleiksmaðurinn Marko Bezjak hlaut í vor hjá króatíska handknattleikssambandinu tekur yfir öll mót sem eru undir hatti EHF, ekki aðeins þau sem eru innan Króatíu. Bezjak getur þar með ekki orðið gjaldgengur með félagsliðum utan Króatíu og innan Evrópu fyrr en hann hefur tekið út bannið í apríl á næsta ári.

Hermt er að þýskt félagslið hafi rennt hýru auga til Bezjak. Félagið getur þar með látið það eiga sig í bili.

Bezjak réðist á eftirlitsmann og hrinti honum eftir að upp úr sauð í viðureign RK Nexe og Zagreb í króatísku úrvalsdeildinni 7. apríl. Myndskeið af atvikinu er að finna hér.

Fleiri máttu súpa seyðið af uppnámi sem varð í leiknum. Veselin Vujovic þáverandi þjálfari RK Nexe fékk þriggja mánaða bann og var sagt upp störfum í kjölfarið og Andraž Velkavrh var úrskurðaður í fjögurra leikja bann.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -