- Auglýsing -
- Auglýsing -

Sandra ætlar að mæta út á völlinn í næsta mánuði

Sandra Erlingsdóttir skorar úr vítakasti í leik við Angóla á HM í á síðasta ári. Mynd/Carina Johansen - EPA
- Auglýsing -

Handknattleikskonan Sandra Erlingsdóttir stefnir á að byrja að leika á ný með þýsku bikarmeisturunum TuS Metzingen snemma í næsta mánuði, innan við þremur mánuðum eft­ir að hún eignaðist sitt fyrsta barn, Mart­in Leo. Sandra segir m.a. frá þessum áformum sínum í ítarlegu viðtali við Morgunblaðið í dag.

Sandra hefur ótrauð æft síðustu vikur auk þess sem hún sló ekki slöku við á meðgöngunni.

Í viðtalinu segist Sandra ennfremur hiklaust stefna á sæti í landsliðinu sem tekur þátt í Evrópumótinu sem hefst í lok nóvember, eftir rétt rúma tvo mánuði. Gangi áform hennar eftir fer amma Martins Leo með og gætir drengsins meðan Sandra æfir og leikur.

Sandra var í aðalhlutverki hjá íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Danmörku og Noregi undir lok síðasta árs hvar íslenska landsliðið vann forsetabikarinn.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -