- Auglýsing -
- Auglýsing -

Árni Snær og Þorvar Bjarmi á faraldsfæti

Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarmi Harðarson fara til Prag síðar í vikunni. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarmi Harðarson dæma fyrri viðureign Slavíu Prag og ZRK Mlinotest Ajdovscina frá Slóveníu í fyrri umferð 1. umferðar Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik á laugardaginn. Leikurinn fer fram í Prag í Tékklandi. 

Árni Snær og Þorvar Bjarmi öðluðust alþjóðlega dómararéttindi í vor og dæmdu sína fyrstu leiki í Grikklandi um þar síðustu helgi í Evrópubikarkeppni karla, 1. umferð. Fengu þeir félagar tvo leiki á tveimur dögum eftir að liðin sem áttust við sættust á útkljá rimmu sína í tvígang á sama stað sinn hvorn daginn.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -