- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grill 66kvenna: KA/Þór nálgast HK, fyrsti sigur Víkings, fyrsta tap FH

Anna Þyrí Halldórsdóttir var markahæst hjá KA/Þór í kvöld. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -


KA/Þór færðist upp í annað sæti Grill 66-deildar kvenna í kvöld með afar öruggum sigri á táningaliði Vals, Val2, í KA-heimilinu, 25:16, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 12:7. Akureyrarliðið er þar með stigi á eftir HK sem situr í efsta sæti með fullt hús stiga eftir þrjár viðureignir.

KA/Þór og HK eigast við í næstu umferð laugardaginn 12. október í KA-heimilinu.

Víkingar fönguðu sínum fyrsta sigri í deildinni á leiktíðinni í kvöld þegar liðið lagði Fjölni með 12 marka mu, 35:23, á heimavelli. Víkingar hleyptu leikmönnum Fjölnis aldrei upp á dekk að þessu sinni. Varnarleikurinn var góður sem skilaði sér í fjölda upphlaupa og mörgum mörkum.

Ungmennalið Fram sótti tvö stig til FH-inga í Kaplakrika, 29:22. Þetta var fyrsta tap FH-liðsins í deildinni. Ethel Gyða Bjarnasen markvörður Fram var þrándur í götu FH-inga að markinu. Hún varði 23 skot.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

KA/Þór – Valur2 25:16 (12:7).
Mörk KA/Þórs: Anna Þyrí Halldórsdóttir 8, Susanne Denise Pettersen 5, Lydía Gunnþórsdóttir 3/1, Kristín A. Jóhannsdóttir 2, Unnur Ómarsdóttir 2, Hildur Magnea Valgeirsdóttir 2, Ólöf Marín Hlynsdóttir 1, Elsa Björg Guðmundsdóttir 1, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Matea Lonac 7, 36,8% – Sif Hallgrímsdóttir 6, 60%.
Mörk Vals2: Laufey Helga Óskarsdóttir 7/1, Kristbjörg Erlingsdóttir 3, Sólveig Þórmundsdóttir 2, Alba Mist Gunnarsdóttir 2, Lena Líf Orradóttir 1, Katla Margrét Óskarsdóttir 1.
Varin skot: Elísabet Millý Elíasardóttir 2, 20% – Arna Sif Jónsdóttir 1, 12,5%.

Víkingur – Fjölnir 35:23 (18:13).
Mörk Víkings: Ída Bjarklind Magnúsdóttir 7, Ída Bjarklind Magnúsdóttir 5, Auður Brynja Sölvadóttir 4, Andrea Ósk Þorkelsdóttir 4, Hafdís Shizuka Iura 4, Sunna Katrín Hreinsdóttir 4, Díana Ágústsdóttir 3, Arnbjörg Bertha Kristjánsdóttir 2, Ester Inga Ögmundsdóttir 1, Helga Lúðvíka Hallgrímsdóttir 1.
Varin skot: Anna Vala Axelsdóttir 12, Þórunn Ásta Imsland 4.
Mörk Fjölnis: Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir 4, Eyrún Ósk Hjartardóttir 4, Sara Kristín Pedersen 4, Signý Harðardóttir 3, Telma Sól Bogadóttir 3, Tinna Björg Jóhannsdóttir 2, Sólveig Ása Brynjarsdóttir 2, Kolbrún Arna Garðarsdóttir 1.
Varin skot: Þyrí Erla Sigurðardóttir 10, Emilía Karítas Rafnsdóttir 1.

FH – Fram2 22:29 (12:15).
Mörk FH: Hildur Guðjónsdóttir 7, Ragnhildur Edda Þórðardóttir 5, Ena Car 4, Telma Medos 3, Sara Björg Davíðsdóttir 2, Fanney Þóra Þórsdóttir 1.
Varin skot: Sigurdís Sjöfn Freysdóttir 11, Bára Björg Ólafsdóttir 1.
Mörk Fram2: Sara Rún Gísladóttir 7, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 7, Valgerður Arnalds 6, Elín Ása Bjarnadóttir 4, Matthildur Bjarnadóttir 4, Þóra Lind Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Ethel Gyða Bjarnasen 23.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -