Jóhanna Margrét Sigurðardóttir og liðsfélagar í sænska úrvalsdeildarliðinu Kristianstad HK er í góðum málum eftir að hafa unnið hollenska liðið Westfriesenland SEW, 32:23, í fyrri viðureigninni í Evrópubikarkeppninni í handknattleik í gær á heimavelli. Síðari leikurinn fer fram í Hollandi á laugardaginn.
Westfriesenland SEW var fjórum mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 16:12. Vopnin snerust í höndum leikmanna liðsins í síðari hálfleik og liðsmenn Kristianstad HK gengu á lagið.
Jóhanna Margrét skoraði fimm mörk fyrir Kristianstad HK og var markahæst ásamt tveimur öðrum. Berta Rut Harðardóttir skoraði ekki mark í leiknum.
Ólafur Örn Haraldsson var eftirlitsmaður EHF í Kristianstad. Hann verður í Höör í dag, einnig við eftirlit, á öðrum Evrópuleik.