- Auglýsing -
- Grænlenska landsliðskona Ivana Jorna Dina Meincke hefur fengið félagaskipti til Víkings í Grill 66-deildinni. Meincke hefur síðustu tvö ár leikið með Stjörnunni en var þar áður hjá FH. Meincke var í grænlenska landsliðinu sem tók þátt í HM í Danmörku, Noregi og Svíþjóð á síðasta ári.
- Breki Dagsson fyrrverandi leikmaður Fram og Fjölnis er einn nokkurra handknattleiksmanna sem fengið hefur félagaskipti yfir í lið Vængja Júpiters síðustu daga. Til félagsins hafa streymt leikmenn en liðið ætlar að leika í 2. deild.
- Þrátt fyrir straum til Vængja Júpiters þá eru einnig dæmi um að leikmenn kveðji herbúðir félagsins. Einn þeirra er Sigþór Gellir Michaelsson sem hyggst spreyta sig með ÍH.
Félagaskiptasíða HSÍ.
[email protected]
- Auglýsing -