- Auglýsing -
- Auglýsing -

Evrópudeild karla “24 – riðlakeppni 32-liða – 1. umferð, úrslit

Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Keppni í riðlakeppni Evrópudeildar, 32-liða úrslitum, hófst í dag. Leikið er í átta riðlum með fjórum liðum í hverjum. Alls fara fram sex umferðir og verða þær leiknar næstu fjóra þriðjudaga auk tveggja þriðjudaga, 18. og 25. nóvember. Tvö efstu lið hvers riðils þegar upp verður staðið halda áfram keppni í 16-liða úrslit sem einnig verður leikin í riðlum frá og með byrjun febrúar á næsta ári.

Auk íslensku liðanna FH og Vals taka margir Íslendingar þátt í Evrópudeildinni með félagsliðum sínum. Hér fyrir neðan eru úrslit 1. umferðar, stuttlega farið yfir hvað íslensku handknattleiksmennirnir gerðu með liðum sínum, að leikmönnum FH og Vals undanskildum. Önnur umferð Evrópudeildar verður leikin 15. október.

Miðasala á handboltaveisluna í Kaplakrika 15. október er á stubb.is – smellið hér.

A-riðill:
HC Kriens-Luzern – Ademar León 34:30 (17:16).
Gorenje Velenje – GOG 35:35 (17:17).

Næstu leikir 15. október:
GOG – HC Kriens-Luzern.
Ademar León – Gorenje Velenje.

B-riðill:
Montpellier – Bjerringbro/Silkeborg 40:26 (23:13).
-Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði 3 mörk fyrir Bjerringbro/Silkeborg.
Grónik Zabrze – Fraikin BM. Granollers 32:36 (15:21).

Næstu leikir 15. október:
Fraikin BM. Granollers – Montpellier.
Bjerringbro/Silkeborg – Górnik Zabrze.

C-riðill:
Kadetten Schaffhausen – Benfica 25:26 (12:15).
-Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 6 mörk fyrir Kadetten.
-Stiven Tobar Valencia skoraði 1 mark fyrir Benfica.

Limoges – Tatran Presov 31:24 (15:12).

Næstu leikir 15. október:
Tatran Presov – Kadetten Schaffhausen.
Benfica – Limoges.

D-riðill:
CSM Constanta – Ystads IF HF 29:29 (13:16).
Bidasoa Irun – Chrobry Glogow 33:33 (15:17).

Næstu leikir 15. október:
Ystads IF HF – Bidasoa Irun.
Chrobry Glogow – CSM Constanta.

E-riðill:
THW Kiel – Bathco Bm. Torrelavega 32:28 (18:14).
RK Nexe – Vojvodina 35:36 (19:19).

Næstu leikir 15. október:
Vojvodina – THW Kiel.
Bathco Bm. Torrelavega – RK Nexe.

F-riðill:
FC Porto – MT Melsungen 24:29 (10:16).
-Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði 4 mörk fyrir Porto.
-Elvar Örn Jónsson skoraði 2 mörk fyrir Melsungen en Arnar Freyr Arnarsson
ekkert.

HC Vardar – Valur 33:26 (19:11).

Næstu leikir 15. október:
MT Melsungen – HC Vardar.
Valur – FC Porto.
Miðasala á handboltaveisluna í Kaplakrika er á stubb.is – smellið hér.

G-riðill:
Flensburg – MRK Sesvete 42:25 (21:17).
MOL Tatabánya KC – HCB Karvina 28:27 (16:10).

Næstu leikir 15. október:
MRK Sesvete – MOL Tatabánya.
HCB Karvina – Flensburg.

H-riðill:
Gummersbach – IK Sävehof 37:25 (18:16).
-Elliði Snær Viðarsson 7 mörk fyrir Gummersbach. Teitur Örn Einarsson lék ekki með vegna meiðsla. Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach.
-Tryggvi Þórisson skoraði 1 mark fyrir Sävehof.

Fenix Toulouse – FH 37:30 (18:16).

Næstu leikir 15. október:
IK Sävehof – Fenix Toulouse.
FH – Gummersbach.
Miðasala á handboltaveisluna í Kaplakrika er á stubb.is – smellið hér.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -