- Auglýsing -
Sjöttu umferð Olísdeildar karla í handknattleik verður framhaldið í kvöld með tveimur viðureignum. Neðsta lið deildarinnar, KA, sækir Fram heim í Úlfarsárdal klukkan 18. Valsmenn, sem komu heim í gærkvöld úr ferð til Skopje í Norður Makedóníu, taka á móti ÍR-ingum klukkan 19.30 á Hlíðarenda.
Olísdeild karla:
Lambhagahöllin: Fram – KA, kl. 18.
N1-höllin: Valur – ÍR, kl. 19.30.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Grill 66-deild kvenna:
Varmá: Afturelding – Berserkir, kl. 19.30.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.
Leikir kvöldsins verða aðgengilegir á Handboltapassanum.
Þrír leikir fóru fram í Olísdeild karla í gærkvöldi þar sem m.a. urðu sviftingar á toppnum.
- Auglýsing -