- Auglýsing -
- Auglýsing -

Myndasyrpa: Björgvin Páll lék á als oddi gegn Porto

Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Björgvin Páll Gústavsson markvörður Vals og íslenska landsliðsins í handknattleik lék á als oddi með Val gegn Porto í annarri umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í Kaplakrika á þriðjudaginn. Ekki síst í síðari hálfleik fór Björgvin Páll á kostum og átti stóran þátt í að Valur vann upp sjö marka forskot og krækti í annað stigið, 27:27. Reyndar var Valur nærrri sigri.

Björgvin Páll varði 19 skot, 43%, í leiknum, þar af tvö vítaköst. Einnig skoraði hann þrjú mörk og átti eitt stangarskot.

Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari náði frábærri myndaröð af Björgvin Páli þegar hann skorar eitt mark sinna í leiknum. Rétt áður hafði skot hans yfir allan völlinn hafnað í stöng Porto-marksins. Til leggja áherslu á að honum bregst eki bogalistin í tveimur skotum í röð lyftir Björgvin Páll tveimur fingrum á loft.
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.

Fleiri myndasyrpur:

Rautt spjald – Andri var stöðvaður á háskalegan hátt – myndir

Myndaveisla: Valur – FC Porto

Myndaveisla: FH – Gummersbach

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -