- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fram, Afturelding og Víkingur unnu leiki sína

Sara Kristín Pedersen leikmaður Fjölnis á auðum sjó í leiknum við Fram í Fjölnishöllinni í gærkvöld. Ljósmynd/Þorgils G - Fjölnir handbolti
- Auglýsing -


Fram2 komst í efsta sæti Grill 66-deildar kvenna í gærkvöld þegar liðið vann öruggan sigur á Fjölni, 34:25, í Fjölnishöllinni í Grafarvogi. Framarar hafa átta stig að loknum fimm leikjum, stigi fyrir ofan Aftureldingu sem vann stórsigur á FH, 30:18, í Kaplakrika.

Hugsanlega verður vera Fram og Aftureldingar skammvinn í tveimur efstu sætum deildarinnar vegna þess að KA/Þór sem var á toppnum fyrir leikina í gærkvöld, mætir til leiks í dag. Taplaust lið KA/Þórs sækir Berserki heim.

Víkingur færðist upp í fimmta sæti Grill 66-deildar. Liðið vann Hauka2 í jöfnum og skemmtilegum leik í Safamýri, 24:22.

Í dag tekur HK á móti Val2 í Kórnum klukkan 14.30. Hálftíma síðar hefst viðureign Berserkja og KA/Þórs í Víkinni.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

Víkingur – Haukar2 24:22 (14:11).
Mörk Víkings: Ída Bjarklind Magnúsdóttir 4, Arnbjörg Bertha Kristjánsdóttir 4, Auður Brynja Sölvadóttir 3, Andrea Ósk Þorkelsdóttir 3, Hafdís Shizuka Iura 3, Sunna Katrín Hreinsdóttir 2, Valgerður Elín Snorradóttir 2, Díana Ágústsdóttir 2, Helga Lúðvíka Hallgrímsdóttir 1.
Varin skot: Signý Pála Pálsdóttir 9, Anna Vala Axelsdóttir 2.

Mörk Hauka2: Ester Amíra Ægisdóttir 9, Þóra Hrafnkelsdóttir 4, Brynja Eik Steinsdóttir 3, Roksana Jaros 3, Bryndís Pálmadóttir 1, Rósa Kristín Kemp 1, Olivia Boc 1.
Varin skot: Elísa Helga Sigurðardóttir 13.

HBStatz.

FH – Afturelding 18:30 (7:16).
Mörk FH: Katrín Ósk Ástþórsdóttir 7, Aníta Björk Valgeirsdóttir 3, Ena Car 3, Sara Björg Davíðsdóttir 2, Hildur Guðjónsdóttir 1, Karen Hrund Logadóttir 1, Ragnhildur Edda Þórðardóttir 1.
Varin skot: Bára Björg Ólafsdóttir 3, Bryndís Rós Birgisdóttir 2.

Mörk Aftureldingar: Anna Katrín Bjarkadóttir 6, Lovísa Líf Helenudóttir 5, Hulda Dagsdóttir 4, Katrín Helga Davíðsdóttir 4, Áróra Eir Pálsdóttir 3, Ragnhildur Hjartardóttir 3, Susan Ines Gamboa 3, Drífa Garðarsdóttir 1, Fanney Ösp Finnsdóttir 1.
Varin skot: Saga Sif Gísladóttir 11, Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir 1.

HBStatz.

Fjölnir – Fram2 25:34 (12:14).
Mörk Fjölnis: Sólveig Ása Brynjarsdóttir 10, Tinna Björg Jóhannsdóttir 6, Eyrún Ósk Hjartardóttir 3, Signý Harðardóttir 2, Sara Kristín Pedersen 2, Azra Cosic 1, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir 1.
Varin skot: Þyrí Erla Sigurðardóttir 10, Emilía Karítas Rafnsdóttir 4.

Mörk Fram2: Sóldís Rós Ragnarsdóttir 8, Elín Ása Bjarnadóttir 6, Sara Rún Gísladóttir 6, Matthildur Bjarnadóttir 6, Valgerður Arnalds 5, Þóra Lind Guðmundsdóttir 2, Ingibjörg Eva Baldvinsdóttir 1.
Varin skot: Ethel Gyða Bjarnasen 16.

HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -