- Auglýsing -
- Auglýsing -

KA/Þór endurheimti efsta sætið með stórsigri

Kristín A. Jóhannsdóttir og félagar í KA/Þór eru aftur komnar í efsta sæti Grill 66-deildar kvenna. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -


KA/Þór endurheimti efsta sæti Grill 66-deildar kvenna í handknattleik í dag með því að vinna Berserki örugglega, 32:12, í Víkinni. Staðan var 16:6, að loknum fyrri hálfleik. Eins og tölurnar gefa e.t.v. til kynna var mótstaða Berserkja ekki mikil að þessu sinni og gott tækifæri gafst hjá KA/Þór að gefa leikmönnum góðan tíma til þess að spreyta sig.


KA/Þór hefur níu stig í efsta sæti Grill 66-deildar, stigi framar en Fram sem laumaðist upp í efsta sætið í gærkvöld.

Meiri spenna í Kórnum

Meiri spenna var í viðureign HK og Vals2 í Kórnum í Kópvogi. Nánast var jafnt á öllum tölum í leiknum þar til komið var fram á síðustu mínútur þegar HK tókst að ná oftar en einu sinni tveggja marka forskoti, síðast, 30:28. Arna Karítas Eiríksdóttir og Guðrún Hekla Traustadóttir skoruðu tvö síðustu mörk Vals og tókst að jafna metin, 30:30. Guðrún Hekla skoraði jöfnunarmarkið á síðustu sekúndum.

HK náði þar með ekki að jafna Fram2 að stigum í öðru sæti heldur er áfram með Aftureldingu í þriðja til fjórða sæti með sjö stig að loknum fimm leikjum.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

Berserkir – KA/Þór 12:32 (6:16).
Mörk Berserkja: Auður Margrét Pálsdótti 3, Birta Líf Haraldsdóttir 2, Brynja Dröfn Ásgeirsdóttir 2, Sandra Björk Ketilsdóttir 2, Arna Sól Orradóttir 1, Birta Dís Lárusdóttir 1, Þórunn Jóhanna Þórisdóttir 1.
Varin skot: Sólveig Katla Magnúsdóttir 9, María Ingunn Þorsteinsdóttir 4.
Mörk KA/Þórs: Susanne Denise Pettersen 12, Hildur Magnea Valgeirsdóttir 6, Aþena Einvarðsdóttir 3, Agnes Vala Tryggvadóttir 2, Anna Þyrí Halldórsdóttir 2, Kristín A. Jóhannsdóttir 2, Tanja Dögg Baldursdóttir 2, Selma Sól Ómarsdóttir 2, Telma Lísa Elmarsdóttir 1.
Varin skot: Sif Hallgrímsdóttir 19.

HBStatz.

HK – Valur2 30:30 (13:13).
Mörk HK: Aníta Eik Jónsdóttir 7, Leandra Náttsól Salvamoser 5, Sóley Ívarsdóttir 4, Anna Valdís Garðarsdóttir 3, Tinna Ósk Gunnarsdóttir 3, Amelía Laufey G. Miljevic 2, Inga Fanney Hauksdóttir 2, Hekla Fönn Vilhelmsdóttir 2, Katrín Hekla Magnúsdóttir 1, Jóhanna Lind Jónasdóttir 1.
Varin skot: Danijela Sara Björnsdóttir 11, Tanja Glóey Þrastardóttir 6.
Mörk Vals2: Guðrún Hekla Traustadóttir 10, Ásrún Inga Arnarsdóttir 6, Arna Karitas Eiríksdóttir 5, Laufey Helga Óskarsdóttir 3, Ágústa Rún Jónasdóttir 2, Eva Steinsen Jónsdóttir 2, Sara Lind Fróðadóttir 2.
Varin skot: Silja Arngrímsdóttir Müller 9.

HBStatz.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -