- Auglýsing -
Ahygli vakti að Aron Rafn Eðvarðsson markvörður Hauka var ekki klæddur svamphjálmi í viðureign Hauka og HC Cocks á Ásvöllum í gær í 64-liða úrslitum Evrópukeppninnar handknattleik. Aron Rafn hefur verið með hjálminn á höfðinu undanfarið rúmt ár eftir að hafa ítrekað orðið fyrir alvarlegum höfuðhöggum í markinu.
Ástæða þess að Aron Rafn var ekki með hjálminn í leiknum í gær er sú að þessi mikilvægi öryggisbúnaður er ekki leyfður í leikjum á vegum Handknattleikssambands Evrópu, EHF.
- Auglýsing -