- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Aron verður með Veszprém í Bitola í kvöld

Aron Pálmarsson í leik með Veszprém í apríl 2017. Hann mætir til leiks á ný með liðinu í kvöld. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Aron Pálmarsson verður í fyrsta sinn í sjö og hálft ár í leikmannahópi Veszprém í kvöld þegar liðið mætir Eurofarm Pelister í A-riðli Meistaradeild Evrópu í handknattleik. Þar með ætti fátt að vera til fyrirstöðu að Aron taki þátt í leiknum.

Leikurinn fer fram í Boro Curlevski í Bitola í Norður Makedóníu en afrit af útgefinni leikskýrslu er hér fyrir ofan.

Formlega var tilkynnt um komu Arons til Veszprém frá FH á mánudagsmorgun. Hann samdi við ungverska meistaraliðið út leiktíðina vorið 2026.

Aron verður með númerið 44 á baki keppnispeysunni eftir því sem fram kemur á leikskýrslu sem gefin var út í morgun.

Veszprém er í öðru sæti A-riðils Meistaradeildar með átta stig að loknum fimm leikjum en fer í efsta sætið með sigri í Bitola í kvöld. Eurofarm Pelister rekur lsteina í A-riðli með eitt stig.

Branislav Angelovski þjálfari sagði skilið við lið Eurofarm Pelister í fyrrakvöld eftir tap liðsins fyrir RK Alkaloid í deildarkeppninni í Norður Makedóníu.

Sjá einnig: „Á enn óklárað verkefni hjá Veszprém“

FH staðfestir brottför Arons – hefur samið við Veszprém

Staðan í A-riðli:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -