- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dana Björg leikur sinn fyrsta landsleik – Sandra og Elísa verða utan hóps

Dana Björg Guðmundsdóttir leikur sinn fyrsta landsleik í kvöld gegn Póllandi. Ljósmynd/Ívar
- Auglýsing -


Dana Björg Guðmundsdóttir leikmaður Volda í Noregi leikur í kvöld sinn fyrsta landsleik þegar íslenska landsliðið mætir því pólska í vináttulandsleik í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal. Dana Björg er ein þeirra sem Arnar Pétursson landsliðsþjálfari hefur valið til þess að taka þátt í leiknum sem hefst klukkan 20.15. Aðgangur að leiknum er ókeypis.

Dana Björg sem leikur í vinstra horni hefur gert það gott með Volda undanfarin tvö ár og var í fyrsta sinn kölluð inn í landsliðið fyrir vináttuleikina við Pólland í kvöld og á morgun.

Sandra Erlingsdóttir, leikmaður Tus Metzingen og Elísa Elíasdóttir leikmaður Vals sitja yfir í kvöld. Sú síðarnefnda á í axlarmeiðslum.

Þórey Rósa Stefánsdóttir leikur sinn 140. landsleik í kvöld.

Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Aarhus Håndbold (62/2).
Hafdís Renötudóttir, Valur (60/4).
Aðrir leikmenn:
Alfa Brá Hagalín, Fram (2/0).
Andrea Jacobsen, HSG Blomberg-Lippe (54/81).
Berglind Þorsteinsdóttir, Fram (26/5).
Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (0/0).
Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (54/73).
Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar (14/38).
Eín Rósa Magnúsdóttir, Valur (21/45).
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Kristianstad HK (17/11).
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Grótta (2/1).
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (19/19).
Perla Ruth Albertsdóttir, Selfoss (50/104).
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, Haukar (115/244).
Steinunn Björnsdóttir, Fram (49/67).
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (92/66).
Thea Imani Sturludóttir, Valur (80/171).
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (139/401).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -