- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Haukar flugu áfram í 16-liða úrslit

Ásgeir Örn Hallgrímsson þjálfari Hauka og Maksim Abkasev aðstoðarþjálfari. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -


Haukar eru komnir í 16-liða úrslit Evrópubikarkeppni karla í handknattleik eftir að hafa unnið finnska liðið HC Cocks öðru sinni í 32-liða úrslitum keppninnar í Riihimäki í Finnlandi í dag, 29:27. Hafnarfjarðarliðið vann einnig fyrri viðureignina, 35:26, og fer þar með áfram með samanlagt 11 marka mun, 64:53.

Leikmenn HC Cocks gerðu hvað þeir gátu til að leggja stein í götu Hauka. Allt kom fyrir ekki. Þegar fyrri hálfleikur var að baki var heimaliðið tveimur mörkum yfir, 14:12.

Dregið verður í 16-liða úrslit keppninnar á þriðjudaginn en síðustu leikjum 32-liða úrslita lýkur á morgun.

Mörk Hauka: Adam Haukur Baumruk 4, Freyr Aronsson 4, Birkir Snær Steinsson 4, Össur Haraldsson 3, Andri Fannar Elísson 3, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 2, Sigurður Snær Sigurjónsson 2, Hergeir Grímsson 2, Skarphéðinn Ívar Einarsson 2, Aron Rafn Eðvarðsson 1, Kristinn Pétursson 1, Þráinn Orri Jónsson 1.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 12, 35,2% – Vilius Rasimas 1, 16,6%.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -