- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dagskráin: Bikarkeppnin og landsleikur

Leikmenn FH og KA/Þórs verða m.a. í eldlínu Poweradebikarsins í kvöld. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Þrír leikir fara fram í 16-liða úrslitum Poweradebikarkeppni kvenna í handknattleik í kvöld auk þess sem landslið Íslands og Bosníu mætast í 1. umferð undankeppni Evrópumótsins í handknattleik karla 2026.

Poweradebikar kvenna, 16-liða úrslit:
KA-heimilið: KA/Þór – Stjarnan, kl. 17.30.
Kaplakriki: FH – Grótta, kl. 18.
Kórinn: HK – ÍBV, kl. 18.

-Leikir Poweradebikarsins verða sendir út á Handboltapassanum.

Poweradebikar kvenna – fréttasíða.

Undankeppni EM karla, 1. umferð, 3. riðill:
Laugardalshöll: Ísland – Bosnía, kl. 19.30 – RÚV.

- Ísland er í riðli með Bosníu, Georgíu og Grikklandi í  undankeppni Evrópumóts karla 2026. Framundan eru tveir leikir hjá íslenska liðinu í undankeppninni. Auk leiksins við Bosníu í kvöld mætir íslenska landsliðið Georgíumönnum í Tíblisi á sunnudaginn kl. 14.
- Næstu leikir íslenska landsliðsins verða um miðjan mars, heima og heiman gegn Grikklandi. Undankeppninni lýkur í byrjun maí með leikjum við Bosníu ytra og heima á móti Georgíu.
- Undankeppni EM er leikin í átta riðlum með fjórum liðum í hverjum. Tvö efstu lið hvers riðil tryggir sér farseðilinn í lokakeppni EM sem fram fer í Danmörku, Noregi og Svíþjóð frá 15. janúar til 1. febrúar 2026. Einnig komast fjögur landslið sem hafna í þriðja sæti í lokakeppnina.
- Þegar hefur verið ákveðið að íslenska landsliðið leikur í riðli sem fram fer í Kristianstad takist liðinu að tryggja sér þátttökurétt.

Miðasala á Ísland – Bosnía.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -