Handknattleikssamband Íslands staðfesti í dag að tveggja áratuga samstarfi við þýska íþróttavöruframleiðandann Kempa væri lokið. Í tilkynningu sem HSÍ gaf út í dag er Kempa þakkað fyrir samstarfið. Leikur A-landsliðs karla við Georgíumenn í Tíblisi í gær var síðasti leikur íslensks landsliðs í handknattleik í keppnisfötum frá Kempa, alltént að sinni.
Þar með er um leið ljóst að kvennalandsliðið verður í búningum frá öðru fyrirtæki þegar það tekur þátt í EM síðar í þessum mánuði. Segir HSÍ að tilkynnt verði á næstunni hvað tekur við og þar af leiðandi hulunni svift af nýjum landsliðsbúningi og framleiðandi hans.
Eins og kom fram í haust hefur HSÍ verið í samningaviðræðum við íþróttavöruframleiðendur vegna æfinga- og keppnisbúninga allra landsliða.