- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hollenska landsliðið var grátt leikið af því norska

Hollensku landsliðskonurnar Romee Maarschalkerw og Larissa Nusser voru ekki upplitsdjarfar eftir skellinn gegn norska landsliðinu í dag. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Eftir stórsigur á rúmenska landsliðinu í fyrradag þá magalenti hollenska kvennalandsliðið í dag þegar það mætti norska landsliðinu á æfingamóti fjögurra landsliða í Holstebro í Danmörku. Norska landsliðið var nánast eitt á leikvellinum í síðari hálfleik og skoraði 21 mark gegn aðeins sjö mörkum hollenska landsliðsins, lokatölur, 33:21.

Hollenska landsliðið verður fyrsti andstæðingur íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í Innsbruck á föstudaginn.


Staða Hollendinga var ágæt þegar fyrri hálfleikur var að baki. Liðið var yfir, 14:12. Í síðari hálfleik tók við svartnætti hjá hollenska landsliðinu þegar við tók stórleikur norska landsliðsins sem lék á alla sína fegurstu strengi. Fyrstu 20 mínútur síðari hálfleiks skoruðu Hollendingar aðeins þrjú mörk.

Ellefu leikmenn norska landsliðsins skoruðu mörkin 33. Markahæst var Henny Reistad með sex mörk.

Þórir Hergeirsson þjálfari norska landsliðsins veltir stöðunni fyrir sér í viðureigninni við hollenska landsliðið í dag. Ljósmynd/EPA

Hollenska landsliðið leikur við danska landsliðið í lokaumferð mótsins á morgun og Noregur mætir Rúmeníu.

Danir unnu Rúmena með 10 marka mun í dag, 35:25.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -