- Auglýsing -
Dregið var í dag í 8-liða úrslit Powerade bikars karla í handknattleik þótt tvær viðureignir í 16-liða úrslitum hafi ekki verið til lykta leiddar. Annarsvegar viðureign bikarmeistara Vals og Gróttu og hinsvegar á milli Selfoss og Íslandsmeistara FH. Til stendur að leikirnir fari fram 9. desember.
Eftirtalin lið drógust saman í 8-liða úrslit:
Fram – Valur eða Grótta.
ÍBV – Selfoss eða FH.
ÍR – Stjarnan.
KA – Afturelding.
Leikir átta liða úrslita verða háðir 17. og eða 18. desember.
ÍBV dæmdur sigur – Haukar ætla að áfrýja
- Auglýsing -