Arnar Pétursson landsliðsþjálfari hefur valið þá 16 leikmenn sem taka þátt í fyrsta leik íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í handknattleik kvenna í Ólympíuhöllinni í Innsbruck í Austurríki í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 17.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Kristianstad HK og Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR, verða utan leikmannahópsins af þeim 18 sem valdar voru til þátttöku í mótinu.
Fjórar leika í dag sinn fyrsta stórmótsleik með A-landsliðinu Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda, Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukum, Katrín Anna Ásmundsdóttir, Gróttu, og Steinunn Björnsdóttir úr Fram.
Þessar taka þátt í leiknum í kvöld:
Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Aarhus Håndbold (66/4).
Hafdís Renötudóttir, Valur (64/4).
Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, HSG Blomberg-Lippe (58/101).
Berglind Þorsteinsdóttir, Fram (30/6).
Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (4/10).
Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (58/77).
Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar (18/55).
Elín Rósa Magnúsdóttir, Valur (25/50).
Elísa Elíasdóttir, Valur (19/15).
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Grótta (6/12).
Perla Ruth Albertsdóttir, Selfoss (54/118)
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, Haukar (119/245)
Steinunn Björnsdóttir, Fram (53/80).
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (96/66).
Thea Imani Sturludóttir, Valur (84/182).
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (142/407).
Eins og áður segir hefst leikur Íslands og Hollands klukkan 17 og verður m.a. textalýsing á handbolti.is úr Ólympíuhöllinni.
A-landslið kvenna – fréttasíða.
Sjá einnig: EM kvenna ”24 – leikjadagskrá, riðlakeppni
Landslið Íslands á EM kvenna 2024