Danir unnu Færeyinga, 33:24, í síðustu umferð D-riðils Evrópumóts kvenna í handknattleik í Basel í kvöld og fara áfram í millriðil tvö með tvö stig. Færeyingar eru úr leik eftir aðdáunarverða frammistöðu á sínu fyrsta Evrópumóti í kvennaflokki. Síðar í kvöld skýrist hvort Sviss eða Króatíu fylgja Dönum áfram í milliriðilinn sem fram fer í Vínarborg.
Færeyingum tókst að stríða Dönum fyrsta stundarfjórðunginn í viðureigninni í kvöld. Eftir það skildu leiðir og danska liðið var með sjö marka forskot í hálfleik, 15:8.
Pernille Brandenborg skoraði 10 mörk fyrir færeyska liðið. Brynhild Pálsdóttir var næst með fimm mörk. Kristina Jörgensen og Trine Jensen Østergaard skoruðu fimm mörk hvor fyrir danska liðið.
Rúmenar í milliriðla
Rúmenar unnu Serba, 27:25, í Debrechen og halda þar með áfram keppni í mótinu og leika í milliriðli eitt. Serbar eru úr keppni. Í kvöld skýrist hvort Svartfellingar eða Tékkar fylgja Rúmenum eftir.
Víst er að í millriðli eitt, sem leikinn verður í Debrechen í Ungverjalandi leika auk Rúmena, Ungverjar, Svíar, Frakkar og Pólverjar.