- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Kastaði hljóðnema í burtu – komu tvisvar í veg fyrir að leikhlé væri hljóðritað

Leikmenn og landsliðsþjálfari Íslands voru ekki að pirra sig á því að leikhlé þeirra væri myndað og hljóðritað í Laugardalshöll í síðasta mánuði. Leimenn Flensburg létu það hlaupa í skapið á sér í gærkvöld að slíkt væri gert. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Einstök uppákoma var leikhléi í viðureign MT Melsungen og Flensburg í þýsku bikarkeppninni í handknattleik í gærkvöld. Meðan starfandi þjálfari Flensburg, Anders Eggert, lagði línurnar fyrir leikmenn þreif leikmaður Flensburg og danska landsliðsins, Mads Mensah Larsen, í hljóðnema sem starfsmaður sjónvarpsstöðvar beindi að liðinu til að hljóðrita það sem sagt var eins og vani er í beinum útsendingum. Mensah lét ekki nægja að grípa í hljóðnemann heldur reif hann af stönginni og kastaði honum í burtu. Ætluðu áhorfendur, í vellinum og heima í stofu, vart að trúa sínum eigin augum. 

Ekki öll sagan sögð

Þar með var ekki öll sagan sögð því undir lok leiksins þegar Flensburg tók annað leikhlé var starfsmaður sjónvarpsins mættur með annan hljóðnema. Hann var rekinn í burtu með harðri hendi og fór með skottið og hljóðnemann í burtu á milli lappanna. 

Skildi ekki neitt í neinu

Hinn margreyndi handknattleiksmaður Stefan Kretzschmar var annar þeirra sem lýsti leiknum í sjónvarpi. Hann sagðist ekki skilja hvað Flensburg-liðinu gengi til með þessum aðgerðum sem líklegt er að dragi dilk á eftir sér. 

Spenna eftir að þjálfarinn var rekinn?

Mikil spenna virðist ríkja í herbúðum Flensburg eftir að þjálfaranum var sagt upp störfum á laugardaginn. Liðið tapaði leiknum í gær og komst þar með ekki í undanúrslit bikarkeppninnar.

Komu skilaboðum til þjálfara

Jim Gottfridsson leikmaður Flensburg gaf þá skýringu eftir leikinn að síðast þegar liðin mættust hafi forsvarsmenn Melsungen hlustað á leikhlé liðsins og komið skilaboðum áfram til þjálfara liðsins sem gat brugðist við.

Flensburg tapaði leiknum og féll úr leik í átta liða úrslitum bikarkeppninnar.

Í undanúrslit annað árið í röð – Elliði Snær skoraði fimm mörk

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -