- Auglýsing -
Víkingar eru byrjaðir að safna liði fyrir næsta keppnistímabil í Grill66-deild karla í handknattleik. Í dag samdi handknattleiksdeild Víkings við hinn 23 ára gamla Gísla Jörgen Gíslason. Hann kemur til Víkings frá FH en frá áramótum lék Gísli Jörgen sem lánsmaður með Þór Akueyri í Olísdeildinni og skoraði 37 mörk í 16 leikjum.
Gísli Jörgen getur leikið jafnt sem miðjumaður og vinstri skytta. „Við erum afar spennt fyrir þessari viðbót í hópinn okkar og væntum mikils af Gísla,“ segir í tilkynningu frá handknattleiksdeild Víkings.
- Haukur heldur áfram að láta ljós sitt skína – myndskeið
- Daninn fór ekki með norður
- Valur vann fyrsta leik deildarinnar eftir mánaðarhlé
- Fjölnir vann Val í síðasta leik sínum í deildinni á árinu
- Aftureldingarmenn fóru illa með KA
- Auglýsing -



