Næsti leikur U19 ára landsliðsins í B-deild Evrópumótsins í handknattleik i Skopje í Norður Makedóníu verður á morgun, mánudag, gegn landsliði Finna. Leikurinn hefst klukkan 11 að íslenskum tíma. Finnar töpuðu í gær í fyrstu umferð fyrir Pólverjum, 34:23. Eins og kom fram á handbolta.is í gær þá tapaði Ísland naumlega fyrir Hvíta-Rússlandi, 23:22, í hörkuleik.
Leikið er í tveimur riðlum í Skopje. Ísland er í A-riðli en í B-riðli eru landslið Hollands, Norður Makedóníu, Bosníu, Kósovó og Færeyja. Holland vann stórsigur á Kósovó í gær, 53:14, og Norður Makedónía lagði Bosníu, 39:28. Færeyska landsliðið mætir til leiks í dag og leikur gegn landsliði Kósovó.
B-deild Evrópumóts 19 ára landsliða fer fram í tveimur hlutum. Annars vegar í Norður-Makedóníu og hinsvegar á Ítalíu. Á morgun verður flautað í fyrsta sinn til leiks á Ítalíu.
A-deild Evrópumótsins, en í henni taka þátt 16 bestu lið Evrópu um þessar mundir, er leikin í Slóveníu. Eftir tvær umferðir eru Þýskaland, Svíþjóð, Rússland, Frakkland og Ungverjaland með fullt hús stig. Keppt er í fjórum fjögurra liða riðlum.
- Myndaveisla: Fölskvalaus sigurgleði þegar áfanga var náð
- Hvað sagði Díana eftir leikinn við Úkraínu?
- Molakaffi: Orri, Arnar, Heiðar, Arnór, Elmar, Aron, Bjarki, Donni, Einar
- Erum komin í frábæra stöðu að leika úrslitaleik
- Hef ekki alveg fattað þetta ennþá