- Auglýsing -
- Lars Geipel og Marcus Helbig þekktustu handknattleiksdómarar á síðustu árum hafa ákveðið að hætta að dæma. Geipel greindi frá þessu í gær. Helbig félagi hans er alvarlega veikur og hefur verið frá af þeim sökum um nokkurra mánaða skeið. Þeir félagar hafa m.a. dæmt saman frá árinu 1993 og hafa dæmt á heims- og Evrópumótum, Ólympíuleikunum og í úrslitum Meistaradeildar.
- Dönsku landsliðsmennirnir Emil Jakobsen og Morten Olsen fóru í gær með landsliðinu til Japans til þátttöku á Ólympíuleikunum sem hefjast eftir rúma viku. Báðir meiddust þeir í viðureign Dana og Svía í vikunni. Meiðsli þeirra virðast ekki alvarleg og ekkert talið til fyrirstöðu að þeir verði klárir í slaginn í fyrsta leik heims- og ólympíumeistarana 24. júlí.
- Hið fornfræga þýska handknattleikslið, Grosswallstadt sem leikur í 2. deild, samdi í gær við tyrkneska landsliðsmanninn Görkem Bicer. Hann er 22 ára gamall og er örvhent skytta. Bicer hefur gert það gott með Besiktas.
- Þúsundir Færeyinga stefna á EM – 20 flugferðir auk þess sem Norræna siglir til Óslóar
- Verður snúinn leikur í mikilli stemningu
- Væri til í að vinna einn bikar með Melsungen
- Edda verður áfram hjá Gróttu
- Sigríður sögð ætla að hætta í lok tímabilsins
- Auglýsing -