Viktor Gísli Hallgrímsson er í þriðja til fjórða sæti á lista yfir þá markverði sem varið hafa hlutfallslega flest skot í leikjum heimsmeistaramótsins í handknattleik karla þegar sex leikdögum er lokið á mótinu. Átta liða úrslit hefjast í dag.
Viktor Gísli varði 67 skot af 167 sem hann fékk á sig í leikjunum sex, 40,1% hlutfallsmarkvarsla. Handbolti.is minnist þess ekki íslenska landsliðið hafi áður verið með markvörð á HM sem varið hefur yfir 40% skot á heimsmeistaramóti, alltént ekki markvörður sem tók jafn mikinn þátt í mótinu og Viktor Gísli gerði. Einnig skoraði hann eitt mark.
Áður en átta liða úrslit hefjast er Daninn Emil Nielsen efstur með 43,8%, 82 varin af 187. Næstur er Króatinn Dominik Kuzmanovic með 60 skot varin af 147, 40,8%. Brasilíumaðurinn Rangel Da Rosa stendur jafn Viktori Gísla með 40,1%, og hefur varið jafn mörg skot. Da Rosa á a.m.k. einn leik eftir.
Þýsku markverðirnir David Späth og Andreas Wolff eru meðal þeirra sem eru á eftir Viktori Gísla með 38,6 og 36,4% hlutfallsmarkvörslu.
Björgvin Páll Gústavsson varði 10 skot af 45, 22,2%.