Pólverjar unnu forsetabikarinn á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla í kvöld þegar þeir unnu Bandaríkjamenn, 24:22, eftir vítakeppni í úrslitaleik í Poreč í Króatíu. Jafnt var að loknum hefðbundnum 60 mínútna leik, 21:21.
Bandaríkjamönnum tókst ekki vel til í vítakeppninni. Þeir skoruðu aðeins úr einu af þremur vítaköstum meðan Pólverjar voru öryggið uppmálað.
Bandaríkjamenn voru lengst af með yfirhöndina í úrslitaleiknum í kvöld. Þeir voru m.a. með þriggja marka forskot, 19:16, þegar um 10 mínútur voru til leiksloka. Bandaríska liðinu tókst ekki að halda út og fara heim með forsetabikarinn í Hvíta húsið.
Heimsmeistaramóti mikilla vonbrigða lauk þar með hjá pólska landsliðinu með sigri í lokaleiknum, forsetabikarnum og 25. sæti. Hætt er við að enn ein uppstokkunin á þjálfarateymi pólska landsliðsins standi fyrir dyrum.
HM ’25: Forsetabikarinn, leikjadagskrá, úrslitaleikir