- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Með því sárasta sem ég hef upplifað á ferlinum

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

„Það er svekkjandi, sárt og mikil vonbrigði að svona skyldi fara. Ég verð lengi að sætta mig við þessa niðurstöðu. Þetta er með því sárasta sem ég hef upplifað á ferlinum sem leikmaður og þjálfari,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla í samtali við handbolta.is sem kominn er heim eftir þátttöku á heimsmeistaramótinu í handknattleik.

Arnór Atlason aðstoðarþjálfari og Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari bera skiptast á skoðunum. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Íslenska landsliðið vann fimm leiki af sex á mótinu en féll úr keppni eftir milliriðla á markatölu þegar það stóð jafnt Egyptalandi og Króatíu að stigum. Íslenska liðið hafnaði í 9. sæti og er um leið fyrsta landsliðið í sögunni, síðan núverandi keppnisfyrirkomulag var tekið upp, sem kemst ekki í átta liða úrslit eftir að hafa lokið keppni í milliriðli með 8 stig.

Tek ekkert af strákunum

„Ég var ánægður með margt hjá strákunum, tek ekkert af þeim. Þeir voru til fyrirmyndar. Ég get ekki kvartað yfir neinu hjá liðinu,“ segir Snorri Steinn og bætir við að góðir möguleikar hafi verið fyrir hendi að vinna leikina við Egypta og Slóvena með meiri mun. Sérstaklega hefði stærri sigur gegn Egyptalandi vegið þungt þegar upp var staðið, burt séð frá tapinu gegn Króötum.

Þegar við komum í leikinn við Króata var ég kominn með ákveðið byrjunarlið og skiptingar í framhaldi af þeim sem mér fannst hafa virkað vel

Hefði ekkert gert hlutina öðruvísi

Spurður hvort eftir á hyggja að hann hefði átt að leggja leikinn við Króata öðru vísi segir Snorri Steinn eiga eftir að fara betur yfir leikina á mótinu og gera þá upp.

Leikmenn íslenska landsliðsins í hóp rétt áður en flautað var til leiks gegn Króötum. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

„Í fljótu bragði held ég að ég hefði ekki gert eitthvað annað en ég gerði. Auðvitað sér maður einhver áhersluatriði sem hefði kannski mátt leggja öðru vísi upp. Hinsvegar er óvíst hvort það hefði dugað til. Það veit maður bara alls ekki og fær aldrei að vita. Fyrst og fremst þá hefðum þurft að hitta á betri leik,“ segir Snorri Steinn og bætir við:

„Litið til baka finnur maður alltaf eitthvað sem maður hefði átt að gera öðruvísi en það er partur af því að vera þjálfari. Maður dregur alltaf sinn lærdóm af hverjum leik,“ segir Snorri Steinn.

Hvort það hafi einhverju breytt hvort Aron byrjaði eða kom inn eftir 10 mínútur verður ekki svarað

Læt aðra um vangaveltur

Spurður hvort hann hafi átt að nota aðra leikmenn í upphafi leiksins, t.d. að láta Aron Pálmarsson byrja í stað þess að skipta honum inn á eftir 10 mínútur.

Aron Pálmarsson fyrirliði og Snorri Steinn. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

„Eftirá vangaveltur með notkun leikmanna er eitthvað sem ég læt aðra um. Þegar við komum inn í leikinn við Króata var ég kominn með ákveðið byrjunarlið og skiptingar í framhaldi af þeim sem mér fannst hafa virkað vel. Hvort það hafi einhverju breytt hvort Aron byrjaði eða kom inn eftir 10 mínútur verður ekki svarað. Ég mun svo sem skoða það betur þegar ég geri upp mótið.“

Alltof mörg tækifæri fóru forgörðum auk þess sem liðið hafi tapað boltanum alltof oft eða alls 13 sinnum meðan Króatar misstu boltann 5 sinnum allan leikinn

Eini hálfleikurinn í mótinu

Snorri Steinn segir að möguleikar hafi verið fyrir hendi að gera betur meðan leikurinn við Króata stóð yfir. Alltof mörg tækifæri fóru forgörðum auk þess sem liðið hafi tapað boltanum alltof oft eða alls 13 sinnum meðan Króatar misstu boltann 5 sinnum allan leikinn. Þar á ofan hafi fyrri hálfleikurinn gegn Króatíu verið eini hálfleikurinn í mótinu sem Viktor Gísli Hallgrímsson náði sér ekki á strik í markinu. Sömu sögu má reyndar segja um Björgvin Pál Gústavsson sem hljóp í skarðið um tíma í fyrri hálfleik. Viktor Gísli hafi hinsvegar átt stórleik í síðari hálfleik en þá hafi sóknarmistökin verið mörg eins áður er getið þótt þeim hafi fækkað frá fyrri hálfleik.

Ég get alveg viðurkennt að ég hefði getað náð meira út úr liðinu en raun var á

Engin ein skýring er réttari en önnur

„Einhver ein skýring á tapinu gegn Króötum er ekkert réttari en einhver önnur,“ segir Snorri Steinn. Þess má geta að íslenska landsliðið vann síðari hálfleik með fjögurra marka mun, 16:12, en samt tapað með sex mörkum þegar litið er til leiksloka, 32:26.

Gísli kom að máli við mig að fyrrabragði hálf miður sín og útskýrði sitt mál. Ég tók hans skýringum hans góðum og gildum og dvaldi ekki meira við málið. Þetta kom klaufalega út og ekki vel út fyrir neinn

Harla óvenjulegt

Gísli Þorgeir Kristjánsson gagnrýndi landsliðsþjálfarann í samtölum og sagði á leifrandi skýrri íslensku að landsliðið hafi verið „outcoachað“ í viðureigninni við Króata. Harla óvenjulegt er að leikmenn íslenska landslisins gagnrýni landsliðsþjálfara opinberlega, ekki síst meðan mót standa ennþá yfir. Hverju svarar Snorri Steinn orðum Gísla Þorgeirs?

Gísli Þorgeir Kristjánsson etur kappi við varnarmann landsliðs Króatíu. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Tók skýringum hans

„Gísli kom að máli við mig að fyrrabragði hálf miður sín og útskýrði sitt mál. Ég tók hans skýringum hans góðum og gildum og dvaldi ekki meira við málið. Þetta kom klaufalega út og ekki vel út fyrir neinn. Við því er á hinn bóginn ekkert að gera. Það er hluti af því að vera þjálfari að takast á við ýmis atvik sem kunna að koma upp.“

Auðvitað verður maður að meta stöðuna hverju sinni en ég er alls á þeim stað í dag að ég ætli mér að kasta handklæðinu inn í hringinn

Óskar Bjarni Óskarsson gefur Snorra Steini ráð. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Gagnrýninn á eigin störf

Snorri Steinn var að lokum spurður hvort niðurstaða nýafstaðins heimsmeistaramóts hafi orðið til þess að hann velti fyrir sér stöðu sinni sem landsliðsþjálfari. Samningur hans við HSÍ er í gildi fram á mitt árið 2026.

„Ég er ekki kominn á þann stað að velta því fyrir mér. Ég á eftir að gera mótið upp. Alla tíð hef ég verið gagnrýninn á sjálfan mig, viljað ná árangri. Ég get alveg viðurkennt að ég hefði getað náð meira út úr liðinu en raun var á. Mér finnst við vera betri en níunda sætið segir til um,“ svaraði Snorri Steinn og bætti við:

„Auðvitað verður maður að meta stöðuna hverju sinni en ég er alls ekki á þeim stað í dag að ég ætli mér að kasta handklæðinu inn í hringinn. Um þessar mundir þarf ég að skoða hlutina, gera upp mótið en vera um leið heiðarlegur við sjálfan mig,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla í samtali við handbolta.is.

Næstu landsleikir verða um miðjan mars við Grikkland heima og að heiman í undankeppni EM 2026. Undankeppnin hófst í nóvember með sigurleikjum á Bosníu og Georgíu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -