- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Aldís Ásta og félagar unnu meistarana á útivelli

Aldís Ásta Heimisdóttir leikmaður Skara HF. Mynd/Ljugström Photography
- Auglýsing -

Aldís Ásta Heimisdóttir og liðsfélagar í Skara HF gerðu gerðu sér lítið fyrir í kvöld og unnu meistaraliðið IK Sävehof, 31:25, í upphafsleik 15. umferðar sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Leikið var á heimavelli IK Sävehof í Partille.

Staðan var 15:12 fyrir Skara þegar fyrri hálfleik var lokið.
Aldís Ásta skoraði fjögur mörk fyrir Skara í leiknum í kvöld og gaf eina stoðsendingu.

Eftir sigurinn í kvöld er Skara aðeins tveimur stigum á eftir IK Sävehof og Skuru sem er í tveimur efstu sætum deildarinnar. Skuru á leik til góða.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -